← Til baka í leit

AkademíuSalurinn

Höfuðborgarsvæðið · Hafnarstræti 5, 101 ReykjavíkLaust um helgar
VeislusalurAfmæliFermingSkírnFyrirtækjaviðburður
Hámark gesta
65
50 sitjandi · 65 standandi
Tímabil á dag
2

Um salinn

AkademíuSalurinn er bjartur og fallegur veislusalur og fundarsalur í miðbæ Reykjavíkur. Salurinn er á þriðju hæð og gengið er inn að Hafnarstræti 5. Húsnæðið er allt ný uppgert með fallegu anddyri og stigagangi og rúmgóðri lyftu. Salurinn rúmar 50 manns í sæti og 65 í standandi veislur og viðburði. Í salnum eru borð og stólar sem hægt er að raða upp á mismunandi hátt, til dæmis sem langborð fyrir 16 manns, 40 manns við borð meðfram veggjum eða bæta við stólum og vera þá með 50 manns í sæti. Í standandi veislum er uppröðun borða óformleg og jafnvel þá hægt að bæta við standborðum. Í AkademíuSalnum er móttökueldhús með ísskáp, uppþvottavél og aðstöðu til að undirbúa veitingar og hella upp á kaffi. Salernisaðstaða við innganginn í salinn. Við innganginn í salinn er einnig fundarherbergi með 16 manna langborði sem leigt er sér. Salurinn er leigður út án veitinga, en mögulegt er að panta veitingar frá einhverjum af fjölmörgu veitingastöðum í kring. Akademíu salurinn hentar einstaklega vel fyrir þá sem vilja vera á góðum stað niður í miðbæ Reykjavíkur í fallegum sal og góðu næði. Salurinn hentar vel fyrir útskriftaveislur, opnanir, menningarviðburði og fyrir þá sem vilja byrja kvöldið í miðbænum í góðu næði með eigin veitingar og halda síðan á vit ævintýra næturlífsins miðbænum á eftir.

Aðstaða

  • Wi-Fi
  • Skjávarpi & tjald

Rými

50 sitjandi · 65 standandi

Hvað er leyft

  • Áfengi leyft

Framboð

  • sunnudagurKvöld (17:00–23:00)
  • mánudagurFundarbókun (12:00–14:00)
  • miðvikudagurFundarbókun (12:00–14:00)
  • fimmtudagurFundarbókun (12:00–14:00)
  • föstudagurFundarbókun (12:00–14:00), Kvöld (17:00–23:00)
  • laugardagurKvöld (17:00–23:00)

Afbókunarstefna

Ein samræmd afbókunarstefna Salabókunar gildir fyrir alla sali. Endurgreiðslan ræðst af því hve löngu fyrir viðburðinn er afbókað.

  • Meira en 30 dögum fyrir viðburðFull endurgreiðsla að frádregnu bókunargjaldi (10%, að lágmarki 2.000 kr)
  • 11 til 30 dögum fyrir viðburð50% endurgreiðsla
  • 10 dögum eða síðarEngin endurgreiðsla
Sjá afbókunarstefnuna í heild →

Staðsetning

Hafnarstræti 5, 101 Reykjavík

Umsagnir

Umsagnir birtast hér eftir að viðburðir hafa farið fram.