Skilmálar
Skilmálar
Skilmálar fyrir notkun Salabókunar: hvernig þjónustan virkar, hvernig bókanir og greiðslur fara fram og hvaða reglur gilda um gestgjafa og gesti.
Um þjónustuna
Salabókun er rekin af Salabókun ehf., Hlíðasmári 8, 201 Kópavogur.
Salabókun er markaðstorg þar sem gestgjafar birta sali til leigu og gestir senda bókunarbeiðnir og greiða með korti á vefnum.
Salabókun er milliliður sem tengir gesti og gestgjafa. Sjálfur leigusamningurinn um salinn er milli gests og gestgjafa; Salabókun er ekki aðili að honum.
Þú þarft að vera lögráða og hafa heimild til að nota þjónustuna til að stofna aðgang.
Aðgangur
Til að senda bókunarbeiðni eða birta sal þarftu að stofna aðgang með netfangi. Innskráning byggir á staðfestu netfangi.
Gestgjafar gefa upp kennitölu. Kennitalan er dulkóðuð í geymslu, aldrei rituð í kerfisannála og send eingöngu til auðkennisveitu vegna auðkenningar og til bókhaldsþjónustu þegar fjárhagsskjal krefst þess.
Þú berð ábyrgð á að halda innskráningarupplýsingum þínum öruggum og á allri notkun aðgangs þíns.
Bókanir
Bókun byrjar sem beiðni. Þú velur sal, dag og eitt af þeim tímabilum sem gestgjafinn býður og sendir beiðni til gestgjafa.
Bókun verður virk þegar gestgjafinn samþykkir beiðnina og, í kortabókunum, þegar tekist hefur að skuldfæra vistaða kortið; takist skuldfærslan ekki er bókunin ekki staðfest og gestinum boðið að ljúka greiðslu með öðrum hætti. Gestgjafi hefur takmarkaðan tíma til að svara; ósvöruð beiðni fellur úr gildi.
Hafni gestgjafi beiðni eða falli hún úr gildi er engin greiðsla tekin.
Salabókun áskilur sér rétt til að hafna eða afturkalla bókun ef grunur leikur á svikum eða misnotkun, ef greiðsla tekst ekki, ef augljós villa hefur orðið í verði, dagsetningu eða öðrum upplýsingum, eða ef bókun brýtur gegn lögum eða þessum skilmálum.
Með bókun samþykkir gestur jafnframt þær reglur og skilyrði sem gestgjafi hefur birt fyrir viðkomandi sal, enda séu þær í samræmi við lög og þessa skilmála.
Greiðslur
Þegar þú sendir bókunarbeiðni er engin greiðsla tekin. Kortið þitt er staðfest með 0 kr. færslu og vistað á öruggan hátt hjá PCI-vottaðri greiðsluveitu gestgjafans (Teya), eingöngu fyrir þessa bókun.
Vistaða kortið er aðeins skuldfært samþykki gestgjafinn beiðnina, og þá um nákvæmlega það verð sem fest var þegar beiðnin var send. Sé beiðni hafnað, falli hún úr gildi eða dragir þú hana til baka er ekkert skuldfært og vistaða kortið ekki notað frekar.
Gestgjafinn er seljandi þjónustunnar og viðsemjandi þinn um greiðsluna. Kortagreiðslur fara fram á greiðslusamningi gestgjafans við greiðsluveituna og á kortayfirliti þínu birtist gestgjafinn eða greiðsluveitan (Teya), ekki Salabókun.
Öll verð eru í íslenskum krónum (ISK). Verð birtast með og eru greidd í heilum krónum.
Kortaupplýsingar fara aldrei um netþjóna Salabókunar heldur eru meðhöndlaðar hjá PCI-vottaðri greiðsluveitu.
Þóknun Salabókunar, ásamt virðisaukaskatti þar sem við á, er reikningsfærð á gestgjafann fyrir hverja staðfesta bókun. Vegna kortabókana samþykkir gestgjafinn að þóknunin sé innheimt með bankakröfu. Falli bókun niður fylgir þóknunin afbókunarskilmálunum: hún reiknast af þeirri fjárhæð sem haldið er eftir samkvæmt þeim og fer aldrei undir 2.000 kr. eftir að bókun hefur verið staðfest, og útgefinn þóknunarreikningur er leiðréttur eða kreditfærður til samræmis.
Afbókanir og endurgreiðslur
Ein samræmd afbókunarstefna Salabókunar gildir um allar bókanir, eins og hún birtist við bókun: full endurgreiðsla að frádregnu bókunargjaldi (10%, að lágmarki 2.000 kr) sé afbókað meira en 30 dögum fyrir viðburð, 50% endurgreiðsla 11 til 30 dögum fyrir, en engin endurgreiðsla sé afbókað 10 dögum eða síðar fyrir viðburð.
Gestgjafi getur afbókað samþykkta bókun í undantekningartilvikum; slík afbókun leiðir til fullrar endurgreiðslu til gests.
Endurgreiðslur eru gerðar á sama greiðslumáta og upphaflega var notaður, í gegnum greiðsluveituna.
Skyldur gesta
Gestur ber ábyrgð á að veita réttar upplýsingar við bókun, fylgja reglum gestgjafa, ganga vel um húsnæði og búnað, fara að gildandi lögum og tryggja að gestir hans fari eftir sömu reglum.
Gestur ber ábyrgð á öllu tjóni sem hann eða gestir hans valda á sal, búnaði eða öðrum eignum á leigutíma.
Skyldur gestgjafa
Gestgjafar bera ábyrgð á að lýsingar, myndir, verð og aðstaða salarins séu réttar og uppfærðar.
Gestgjafar sjá um að halda dagatali sínu réttu. Valfrjáls tvíátta samstilling við Google dagatal er í boði fyrir hverja skráningu.
Auk þessara skilmála gilda sérstakar reglur gestgjafa sem lýsa skyldum við birtingu og rekstur sala.
Gestgjafi ber ábyrgð á að hafa heimild til að leigja út salinn, að nauðsynleg leyfi liggi fyrir, að viðeigandi tryggingar séu til staðar og að salurinn uppfylli lög og reglur sem um starfsemina gilda.
Gestgjafi ber einn ábyrgð á skattskilum, virðisaukaskatti og öðrum opinberum gjöldum vegna tekna sem aflað er í gegnum Salabókun.
Ágreiningur
Salabókun getur óskað eftir myndum, myndböndum, samskiptum eða öðrum gögnum sem nauðsynleg eru til að meta málið. Rafrænar skráningar, samskipti og greiðsluupplýsingar sem verða til í kerfum Salabókunar geta, að því marki sem lög heimila, verið lagðar til grundvallar við úrlausn ágreinings.
Salabókun leitast við að aðstoða aðila við lausn ágreinings en er ekki gerðardómur og tekur ekki endanlega afstöðu til einkaréttarlegra ágreiningsmála milli gests og gestgjafa.
Ábyrgð
Þjónustan er veitt eins og hún er. Salabókun ábyrgist ekki ástand, öryggi eða lögmæti sala sem gestgjafar birta.
Ágreiningur um sjálfa leiguna er milli gests og gestgjafa. Skilaboð milli aðila eru varðveitt sem gögn ef til ágreinings kemur.
Að því marki sem lög leyfa takmarkast ábyrgð Salabókunar við þá þjónustugjaldsupphæð sem tengist viðkomandi bókun.
Innan sömu marka ber Salabókun ekki ábyrgð á framkvæmd viðburða, ástandi eða gæðum sala, réttmæti upplýsinga sem notendur birta, háttsemi gesta eða gestgjafa, slysum eða tjóni á fólki eða eignum, tekjutapi eða hagnaðarmissi, óbeinu eða afleiddu tjóni, né tæknibilunum, nettruflunum eða þjónustu þriðja aðila.
Salabókun ábyrgist hvorki að salur verði bókaður né að gestgjafi fái tiltekinn fjölda bókana eða ákveðnar tekjur með notkun þjónustunnar.
Salabókun ber ekki ábyrgð á töfum eða vanefndum sem rekja má til atvika utan eðlilegrar stjórnar félagsins, svo sem náttúruhamfara, eldgosa, farsótta, verkfalla, netárása, rafmagnsleysis eða stjórnvaldsákvarðana.
Misnotkun og samskipti utan vettvangs
Salabókun getur takmarkað eða lokað aðgangi notanda ef málefnalegar ástæður eru fyrir hendi, svo sem grunur um svik, misnotkun, brot á lögum eða þessum skilmálum, öryggisástæður eða ef slíkt er nauðsynlegt til að vernda vettvanginn eða aðra notendur.
Salabókun getur jafnframt fjarlægt sali, auglýsingar eða annað efni sem brýtur gegn lögum, þessum skilmálum eða stefnu þjónustunnar.
Salabókun ber enga ábyrgð á samkomulagi, breytingum eða greiðslum sem gestur og gestgjafi gera sín á milli utan vettvangsins.
Hugverkaréttur
Allt efni á Salabókun, þar á meðal vörumerki, hönnun, texti, myndir og hugbúnaður sem Salabókun á eða hefur leyfi til að nota, er verndað samkvæmt lögum um hugverkarétt.
Gildandi lög og breytingar
Um þessa skilmála gilda íslensk lög og ágreiningur heyrir undir íslenska dómstóla.
Salabókun getur uppfært skilmálana. Verulegar breytingar verða kynntar áður en þær taka gildi.
Breytingar taka gildi við birtingu á vefnum og hafa ekki áhrif á þegar staðfestar bókanir nema lög eða eðli breytingarinnar krefjist annars.
Reynist eitthvert ákvæði þessara skilmála ógilt eða óframkvæmanlegt hefur það ekki áhrif á gildi annarra ákvæða.
Spurningar um skilmálana?
Hafðu samband og við aðstoðum þig.