Stefna
Afbókunarstefna
Ein samræmd afbókunarstefna gildir um allar bókanir á Salabókun. Hér sérð þú hvað er endurgreitt, hvenær og hvernig sérstök tilvik eru meðhöndluð.
Endurgreiðslur við afbókun gests
Afbóki gestur staðfesta bókun ræðst endurgreiðslan af því hve margir heilir dagar eru frá afbókun til viðburðar, miðað við íslenskan tíma. Sama tafla gildir fyrir alla sali:
| Tímarammi | Endurgreiðsla til gests |
|---|---|
| Meira en 30 dögum fyrir viðburð | Full endurgreiðsla að frádregnu bókunargjaldi (10% af heildarverði, að lágmarki 2.000 kr) |
| 11 til 30 dögum fyrir viðburð | 50% af heildarverði |
| 10 dögum eða síðar | Engin endurgreiðsla |
Bókunargjald og þjónustugjald
Bókunargjaldið (10% af heildarverði, að lágmarki 2.000 kr) og þjónustugjald Salabókunar eru óendurkræf. Hlutur Salabókunar er aldrei lægri en 2.000 kr, einnig þegar bókun klárast að fullu.
Afbókun gestgjafa
Afbóki gestgjafi staðfesta bókun fær gestur fulla endurgreiðslu, að meðtöldum öllum gjöldum, óháð töflunni að ofan. Endurteknar afbókanir gestgjafa leiða til skoðunar á aðgangi hans.
Flutningur dagsetningar
Salabókun býður að svo stöddu ekki upp á flutning bókunar á nýja dagsetningu í kerfinu. Þurfi að breyta dagsetningu er bókunin afbókuð samkvæmt töflunni og ný bókun gerð, eða leyst úr málinu í samráði við þjónustuver Salabókunar.
Óviðráðanleg atvik
Sé ómögulegt að halda viðburð vegna óviðráðanlegra atvika (náttúruhamfarir, eldgos, lokanir stjórnvalda og sambærileg tilvik) geta Salabókun og gestgjafi vikið frá töflunni og endurgreitt umfram hana.
Frekari endurgreiðslur
Endurgreiðslur umfram töfluna eru aðeins mögulegar með samþykki þjónustuvers Salabókunar. Gestgjafar geta ekki sjálfir framkvæmt endurgreiðslur.
Gildi afbókunar
Afbókun telst aðeins gild þegar hún er staðfest í gegnum Salabókun. Samskipti utan kerfisins, til dæmis símtal eða tölvupóstur beint til gestgjafa, teljast ekki afbókun.
Útborgun til gestgjafa
Greiðslur eru í vörslu þar til leigu lýkur. Hlutur gestgjafa er gerður upp daginn eftir viðburð og greiddur út almennt fyrsta virka dag eftir að leigu lýkur.
Spurningar um afbókun?
Þjónustuver Salabókunar svarar spurningum um afbókanir og endurgreiðslur.