← Til baka í leit

Bragðlaukar Veislusalur

Höfuðborgarsvæðið · Urðarhvarf 4, 203 KópavogurLaust um helgar
Tímabil á dag
1

Um salinn

Bragðlaukasalurinn sameinar glæsilegt útlit og hlýlegt andrúmsloft. Mikil lofthæð, falleg lýsing og vandaðar innréttingar skapa skemmtilega umgjörð, á meðan stórir gluggar veita einstakt útsýni yfir Reykjavík og Esjuna. Frá salnum er einnig hægt að ganga út á svalir og njóta ferska loftsins þegar veður leyfir. Við innganginn er rúmgott forrými með glæsilegum bar, háborðum og barstólum þar sem gestir geta hist og spjallað áður en dagskráin hefst. Þar er jafnframt góð aðstaða til að bjóða upp á veitingar og drykki. Salurinn rúmar allt að 100 gesti í sitjandi veislum og um 130 gesti þegar um standandi móttökur eða viðburði er að ræða. Hægt er að útfæra borðaskipan á fjölbreyttan hátt svo hún henti tilefni hverju sinni. Svört borð og þægilegir stólar gefa salnum fágað yfirbragð, hvort sem notaðir eru dúkar eða ekki. Dúka er hægt að leigja eftir þörfum. Aðkoma að húsinu er einföld og næg bílastæði eru í boði fyrir gesti. Bragðlaukasalurinn hentar fyrir fjölbreytt tilefni, hvort sem um er að ræða brúðkaup, fermingar, afmæli, fyrirtækjaviðburði, árshátíðir, jólaveislur eða aðrar samkomur þar sem óskað er eftir fallegu umhverfi og góðri aðstöðu.

Aðstaða

  • Hljóðkerfi
  • Sviðsljós & svið
  • Bílastæði
  • Skjávarpi & tjald
  • Fatahengi

Hvað er leyft

  • Tónlist eftir kl. 22
  • Börn velkomin

Framboð

  • sunnudagurHeill dagur
  • mánudagurHeill dagur
  • þriðjudagurHeill dagur
  • miðvikudagurHeill dagur
  • fimmtudagurHeill dagur
  • föstudagurHeill dagur
  • laugardagurHeill dagur

Afbókunarstefna

Ein samræmd afbókunarstefna Salabókunar gildir fyrir alla sali. Endurgreiðslan ræðst af því hve löngu fyrir viðburðinn er afbókað.

  • Meira en 30 dögum fyrir viðburðFull endurgreiðsla að frádregnu bókunargjaldi (10%, að lágmarki 2.000 kr)
  • 11 til 30 dögum fyrir viðburð50% endurgreiðsla
  • 10 dögum eða síðarEngin endurgreiðsla
Sjá afbókunarstefnuna í heild

Staðsetning

Urðarhvarf 4, 203 Kópavogur

Umsagnir

Umsagnir birtast hér eftir að viðburðir hafa farið fram.